|
|
 |
|
|
|
|
Fréttir - 10. maí 2013 Námur og efnistaka Opnaður hefur verið nýr vefur um efnistöku og námur. Að vefnum standa Vegagerðin, Landsvirkjun og Umhverfisstofnun. Þar er að finna upplýsingar um efnisnám og hvernig best er að standa að ýmsum þáttum þess. Einnig er safnað saman upplýsingum um lagaumhverfi og leyfisveitingar. Veiðimálastofnun lagði til efni er varðar malartekju í ám sem oft hefur verið til vandræða.
|
|
Fréttir - 15. apríl 2013 Undirstöður lífs í Úlfarsá mældar. Frumframleiðni mæld í fyrsta skiptið í íslenskri laxveiðiá
 |
| Unnið að rannsókn á vettvangi og rannsóknastofu | Nýlega hóf Veiðimálastofnun rannsókn á grunnþáttum í lífríki Úlfarsár, eða Korpu, eins og hún er einnig nefnd. Óhætt er að fullyrða að hér sé um tímamótarannsókn að ræða því frumframleiðni hefur ekki áður verið mæld í straumvatni á Íslandi.
Frumframleiðni er í grunninn framleiðsla á lífrænu efni úr koldíoxíð og nánast allt líf á jörðinni er á einn eða annan hátt háð því ferli. Frumframleiðendur eru þær lífverur sem geta beislað orku sólarljóssins og nýtt hana til þessarar framleiðslu. Lífræn efni sem þannig myndast, nýtast í efri þrepum fæðukeðjunnar og er því á óyggjandi hátt undirstaða fyrir öllu lífi. Þörungar eru án efa afkastamestir meðal frumframleiðenda í ám hér á landi. En auk þeirra eru mosar og háplöntur einnig mikilvægir hlekkir í fæðukeðjum. Þessar lífverur eru því undirstaða fyrir aðrar lífverur í vatni þ.m.t. laxfiska. Í áratugi hefur Veiðimálastofnun fylgst með fiskstofnum í straumvatni, m.a. fjölda og ástandi laxaseiða, göngu þeirra til sjávar og fjölda þeirra sem endurheimtast úr hafi sem fullorðnir laxar. Hefur aðferðum og tækni við að fylgjast með þessum þáttum þróast mikið t.d. í merkjum til að fylgjast með fari fiska og fiskteljurum sem fylgjast með uppgöngu laxfiska eftir sjávardvöl.
Smellið á meira...
|
|
Fréttir - 22. mars 2013 Ágrip af greinum í ársskýrslu Veiðimálastofnunar Í ársskýrslu Veiðimálastofnunar er m.a. finna ágrip af greinum starfsmanna sem birst hafa í ritrýndum tímaritum eða ritröðum. Um er að ræða greinar sem snerta ýmis efni.
-
Samhæfð vöktun líffræðilegs fjölbreytileika í ferskvatni á norðurslóðum
-
Breytileiki í kísilþörunga og mosasamfélögum í misheitum norðlægum lækjum: líkön fyrir stærri vistkerfi?
-
Þverfaglegar rannsóknir á sviði náttúrulífsferðamennsku; Samspil á milli landsela (Phoca vitulina) og ferðamanna á Vatnsnesi, Íslandi
-
Lífsferlar Eukiefferiella claripennis (Lundbeck 1898) og Eukiefferiella minor (Edwards 1929) (Diptera: Chironomidae) í lindalækjum með hliðsjón af loftlagsbreytingum
-
Aldur og greining á vaxtarmynstri í sjávardvöl unglaxa í Norðaustur Atlantshafi
-
Áhrif loftslagshlýnunar á gerðir og virkni lífveru-samfélaga í ferskvatni: einstklingar upp í heil vistkerfi
-
Hvaðan koma íslenskar sæsteinsugur (Petromyzon marinus)?
-
Hegðun stóðhesta í hálfvilltu stóði á Íslandi: tímanotkun, heimasvæði og samskipti
-
Áhrif stóðhesta á félagsleg samskipti hópameðlima
-
Lífssögulegir þættir hjá sjóbirtingi í tveimur íslenskum ám
Þeir sem vilja kynna sér innihald þessara greina frekar geta nálgast þær upplýsingar hér (ársskýrslan). Auk þess er er bent á ritaskrá Veiðimálastofnunar en skýrslur stofnunarinnar eru aðgengilegar á heimasíðu stofnunarinnar hér.
|
|
Eldri fréttir
| |
|
|
|
|
|