VeiðinýtingLífríkiRannsóknirRáðgjöf
Leita
English
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Rafræn veiðiskráning
Rafræn veiðiskráning
Skráning á póstlista
Leitarorð
Höfundur
Vatnsberi í Berufirði

Veiðimálastofnun

 

 

Starfsemi Veiðimálastofnunar má rekja aftur til ársins 1946, en það ár var Þór Guðjónsson skipaður í nýtt embætti veiðimálastjóra, samkvæmt ákvæði í lögum frá 1932.  Verksvið veiðimálastjóra var að annast rannsóknir vatna og fiska og skrásetja veiðivötn, safna skýrslum um veiði og fiskrækt, undirbúa byggingu klakstöðva og fiskvega, gera tillögur um reglugerðir um friðun og veiði, leiðbeina um veiðimál og vera ráðherra til aðstoðar um allt sem að veiðimálum lýtur.  Fyrsta aldarfjórðunginn var starfslið veiðimálastjóra fámennt, einn til tveir starfsmenn auk veiðimálastjóra.  Á áttunda áratugnum fjölgaði starfsfólki embættisins og stofnuð voru útibú frá stofnuninni á landsbyggðinni.